Hvernig virkar Maur?

Við reyndum að hafa Maur.is eins þægilega og einfalda og hægt er en að sjálfsögðu er þér velkomið að hafa samband við okkur og við aðstoðum við uppsetningu á prófílnum þínum eða ef þú vilt óska eftir aðila í þitt verkefni.

Þeir sem vilja skrá starfsemi sína og þjónustu hjá Maur geta farið efst hér á síðunni undir “‘Skrá þjónustu mína”. Þegar valin hefur verið áskriftarleið þá þarf að fylla út upplýsingar varðandi starfsemi sína og hæfileika. Góð hugmynd væri til dæmis að setja myndir á prófilinn og gera hann aðlaðandi og skemmtilegan. Myndirnar ættu að sýna þig og/eða eitthvað tengt starfsemi þinni.
Þegar prófíllinn er tilbúinn þá er um að gera að deila honum á Facebook og vonandi fer fljótt að rigna inn verkefnum!

Dæmi um Vinnumaur
Pípari sem getur bætt á sig verkefnum hvort sem það sé á daginn, kvöldin eða um helgar getur skráð sig hjá Maur. Þegar einhvern vantar pípara ætti ekki að vera neitt mál fyrir þann aðila að fara á Maur.is og leita að pípara sem er laus og hentar í verkefnið. Þannig auðveldum við lífið fyrir bæði verktaka og verkkaupa.

Þegar verkefni er lokið mælum við með að verkkaupandi gefi verktaka ummæli en það er sérstaklega mikilvægt fyrir síðu verktakans til að byggja upp sinn prófíl og orðspor sitt á Maur.

Vantar þig vinnumaur?
Fyrir þá sem vantar fólk í verkefni er hægt að finna vinnumaura á skrá hjá okkur. Ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að, sendu okkur endilega póst á maur@maur.is og við aðstoðum þig við að finna réttan aðila í starfið!

Ef fólk eða fyrirtæki vilja auglýsa eftir aðilum í ákveðnar stöður er það gert undir “Óska eftir þjónustu”. Þar þarf að fylla út nauðsynlegar upplýsingar varðandi þig og verkefnið sem þú þarft aðstoð með. Það á einnig við þegar verið er að leita að fólki í stærri eða lengri verkefni.

 

Alltaf er hægt að hafa samband við okkur á maur@maur.is ef einhverjar spurningar vakna.  Við reynum að svara eins fljótt og auðið er.

Blogg, Fréttir