Skráðu þig og sendu skilaboð

Verkefnalýsing

Tek að mér prófarkalestur, blaðaskrif og söngkennslu. Hef lesið yfir lokaritgerðir, skýrslur, dagblöð, tímarit og bækur. Þá hef ég einnig sinnt blaðamennsku og fékk verðlaun frá Blaðamannafélagi Íslands fyrir viðtal ársins árið 2019 sem birtist í Mannlífi. Ég hef kennt söng og tengdar greinar í um 24 ár og sungið víða. Auk þess hef ég þýtt matreiðslubók og kennt íslensku fyrir skiptinema.

Education

BA-gráða í almennum málvísindum, Háskóli Íslands. Meistaragráða í blaða- og fréttamennsku, Háskóli Íslands. Meistaragráða, New England Conservatory of Music í Boston.

HÍ 1985-1998, New England Conservatory og Music, 1991-1995, HÍ, 2015-2018. Löng reynsla af yfirlestri á margvíslegu efni og blaðaskrif um ýmiss konar málefni. Hef einnig kennt og komið víða fram sem söngkona.