Verkefnalýsing
Hæ,
Ég heiti Sigurður Hannes Ásgeirsson.
Síðustu árin hef ég unnið við hönnun og framleiðslu á hvers kyns markaðsefni, hvort sem það er hugmyndavinna, handritagerð, undirbúningur, framleiðsla, leikstjórn eða eftirvinnsla.
Ég er skapandi og vil meina að þar liggi minn helsti styrkur, hress, vanur að vinna undir álagi ef svo ber undir, hef mikla reynslu af verkefnastjórnun og leikstjórn og nýt mín einn að vinna í hugmyndum.
Ég hef unnið með fjöldann allan af fólki síðustu árin, hvort sem það eru starfsmenn vefmarkaðsfyrirtækja, markaðsdeilda hjá fjölda fyrirtækja, auglýsingastofa, tökumenn, hljóðmenn, förðunarfólk, stílistar, leikarar ofl. og það hefur án undantekninga gengið vel, á auðvelt með samskipti við annað fólk.
Bakgrunnur minn er í kvikmynda og sjónvarpsgerð.
Ég nam kvikmyndagerð í New York, vann þar um hríð, flutti mig um set til Montreal þar sem ég vann við gerð sjónvarpsþátta sem framleiðandi, leikstjóri og klippari.
Næst lá leiðin til Dubai. Til að byrja með vann ég við gerð kynningarefnis fyrir ýmis fyrirtæki í dubai, fólst vinna mín í handritaskrifum, leikstjórn og klippingum.
Að þeirri vinnu lokinni færði ég mig um set og vann sem leikstjóri og framleiðandi í sjónvarpi um nokkurt skeið, sá um gerð þáttar sem tók fyrir listir, fólk og menningu í mið-austurlöndum, aðallega Dubai.
Síðan tók ég að mér að skrifa handrit og leikstýra þrem heimildamyndum fyrir Al Jazeera sjónvarpsstöðina sem voru teknar upp í Namibíu 2009 og skilaði þeim frá mér áður en ég kom heim til Íslands.
Árið 2012, skrifaði ég, framleiddi og leikstýrði ég ásamt Barða Stefánssyni stuttmynd, sem heitir Stuðtækið, með Arnari Jónssyni og Guðmundi Inga Þorvaldssyni í aðalhlutverkum
ásamt því að vinna að gerð sjónvarpsþáttarins Með Okkar Augum fyrir RÚV. Einnig vann ég talsvert fyrir Sagafilm við klippivinnu.
2014-16 vann ég sem klippari hjá RVK Studios við að klippa Iceland Got Talent 1, 2 og 3 ásamt því að vinna við að klippa The Voice hjá Sagafilm.
2104 bjó ég til ásamt Hjálmari Erni Jóhannssyni skemmtikrafti, sjónvarpsþátt sem hét Háski fyrir sjónvarpsstöðina Bravó, en Háski var síðar sýndur á Vísir.is við góðar undirtektir. Bjó einnig til ásamt Hjálmari Erni, innslög fyrir þátt Péturs Jóhanns á Bravó.
2016 stofnuðum við Hörður Ásbjörnsson hönnuður og Beggi Dan vefmarkaðssérfræðingur, hönnunar og framleiðslufyrirtækið Skuggaland sem hefur sérhæft sig í hugmyndavinnu og framleiðslu á hvers kyns markaðsefni, myndböndum, ljósmyndum og grafík, fyrir netið, hvort sem það eru samfélagsmiðlar eða heimasíður. Skuggaland hefur unnið mikið fyrir Krónuna, Elko, Securitas, Reykjavíkurborg, Bláa Lónið, Icepharma, Nýsköpunarsjóð ofl.
Skuggaland vann náið með vefmarkaðsfyrirtækinu The Engine, sem núna heitir Svartigaldur, á sínum tíma sem kenndi okkur að sérsníða markaðsefni fyrir netið.
Bestu kveðjur,
Siggi Hannes – 6962855