Skráðu þig og sendu skilaboð

Verkefnalýsing

“Múr og tröppuviðgerðir: Segðu bless við sleipar og illa farnar tröppur

Illa farnar útitröppur geta verið mikið lýti á fallegu húsi. Að sama skapi geta illa veðraðar tröppur með brotnum og daufum köntum verið
stórhættulegar. Múr og tröppuviðgerðir er fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem sérhæfir sig í tröppuviðgerðum, bæði úti og inni. „Við erum mest í að endurmúra tröppur en tökum líka að okkur ýmsar sprunguviðgerðir, múrun á svalargólfum og önnur smærri múrverk,“ segir Páll Helgi Kristinsson

Mapei gæðamúr
Múr og tröppuviðgerðir notar eingöngu steypu frá Mapei, sem er norskt steypufyrirtæki sem framleiðir hágæða steypu og hentar sérlega vel fyrir íslenskar aðstæður. „Múrinn er trefjabundin, einstaklega gott slitþol og þolir vel alla þá veðrun sem á sér stað hérlendis, meðal annars sífelldar frosthörkur og þiðu á veturna sem og löng rigningarsumur eins og var hér í borginni í fyrra. Múrinn hefur afar góða viðloðun og endist lygilega vel. Það sér vart á tröppum sem við steyptum fyrir sjö árum síðan þegar við byrjuðum að nota múrinn frá Mapei. Ég gæti líka hæglega trúað að steyptar tröppur með Mapei múrnum séu að fara að endast í hátt í 20 ár eða meira.“ Það miðast við að undirvinnan og múrvinnan sé framkvæmd á réttan hátt.

Það jafnast ekkert á við Mapei
„Við vinnum verkefni á Höfuðborgarsvæðinu, en höfum líka farið eitthvað út á land. Það er alltaf nóg að gera og við erum að fá hátt í 120 verkefni á hverju sumri.“ Það sem fer verst með útitröppur á Íslandi er að sjálfsögðu veðrið, og þá sérstaklega frost og þíðing. „Einnig er algengt að fólk sé að salta of mikið eða er að lemja ísinn af tröppunum, en þá getur farið að kvarnast upp úr þeim. Einnig er algengt að fólk sé að nota kolröng efni í útitröppur. Flísar eru til dæmis sjaldan nægilega endingargóðar og við höfum verið að fletta afar illa förnum nýlegum flísum af tröppum til þess að endursteypa þær með Mapei múrnum. Einnig hefur flotun gefið lélegan árangur. Mapei hefur verið í stöðugri þróun gegnum tíðina og alltaf eru að koma ný og ný efni sem eru að verða betri og betri. T.d er komið inn nýtt efni frá Mapei sem er sérhannað fyrir svalagólf, þar sem það er alveg vatnshellt og er litur í múrnum, sem fólk getur valið um. Þarmeð heyrir flagnandi málning á svölum sögunni til. Það jafnast ekkert á við Mapei múrinn.“

Þegar tröppur eru illa farnar þarf að byrja á að taka burt allt það efni sem er illa farið og bindingin er farin. Trefjastyrktur múr er síðan tvídregin yfir tröppurnar þannig að hún myndar sterkt slitlag ofan á. „Múrinn þornar svo þannig að það myndast hrjúft yfirborð, eins og á sandpappír, sem verður til þess að það þarf mun sjaldnar að salta. Auk þess er minni hætta á að þær verði sleipar í bleytu eða smá ísingu,“ segir Páll.

Sendu póst á murogtroppur@murogtroppur.is og fáðu tilboð í þínar tröppur, þér að kostnaðarlausu.
Fylgstu með á Facebook: Múrviðgerðir
Sími: 825-0643