Verkefnalýsing
Ég hef talsverða reynslu af ráðgjöf og þjónustu í Dynamics 365 (CRM) hugbúnaði frá Microsoft, ásamt PowerApps, Power BI og ClickDimensions. Hef stýrt ýmsum verkefnum tengdum þessum kerfum, frá einföldum aðlögunum til flókinna samþættingarverkefna. Ég veiti jafnframt ráðgjöf í hönnun þjónustu- og söluferla fyrirtækja til þess að tryggja hámarks skilvirkni og árangur í söluaðgerðum og veittri þjónustu.
Sjá nánar starfsreynslu og fyrri verkefni á LinkedIn prófíl.
Ég get útvegað ferilskrá og meðmæli sé óskað eftir því.
Education
-
Copenhagen Business School
-
Sumar 2016 - Sumar 2018
Meistaragráða í e-Business
e-Business felur í sér öll rafræn viðskipti fyrirtækja eða einstaklinga með hjálp internettengdra upplýsingakerfa. Þetta geta verið ytri kerfi, s.s. vefsíður fyrirtækja, eða innri kerfi, s.s. innranet, sem nota á einhvern hátt Internet tæknina til þess að eiga samskipti í þeim tilgangi að markaðssetja, selja eða þjónusta vörur eða þjónustu.