Skráðu þig og sendu skilaboð

Verkefnalýsing

Unnið við sölu og markaðsmál í 15 ár, held úti hlaðvarpi tileinkað þessum sömu málum.
Býð upp á þjálfun og kennslu.

Einkaþjálfun í markaðssetningu
Um er að ræða einkaþjálfun í markaðssetningu með áherslu á internetið.
Í boði er að setjast niður með mér, annað hvort hjá mér eða þér, í allt frá 2 klukkutímum og eins lengi og þarf.
Á þessum tíma  fer ég  með þér yfir markaðsmálin hjá þínu fyrirtæki.
Ég legg sérstaklega áherslu á, það sem eru kallaðir stafrænar miðlar, sem eru til dæmis samfélagsmiðlar og leitarvélar.

Atriði sem við förum yfir eru meðal annars:

Hver eru þín markmið og hvernig mælir þú árangur
Hver er þinn markhópur
Hvaða miðlar passa fyrir þig að nota, Facebook, LinkedIn, YouTube, Instagram
Hvaða skilaboð,  hvernig efni og  hvernig auglýsingar virka fyrir þig
Þessi atriði förum við yfir saman með það að markmiði að þú getir sjálf/sjálfur séð um þessi mál fyrir þitt fyrirtæki eftir að þjálfuninni líkur.

Fyrir áhugasama er hægt að hafa samband í síma 519-4774 eða senda tölvupóst á info@jons.is

Tilboðsverð í sumar
Fyrir lítil fyrirtæki og einstaklinga er ég að bjóða einkaþjálfun núna á kr. 35.000 + vsk.
Innifalið eru 2 klukkutímar í einkaþjálfun á staðnum (í fjarfundi ef ekki er hægt að hittast)  ásamt eftirfylgni í síma eða yfir fjarfundabúnað.

Fyrir meðalstór fyrirtæki, samtök eða félög er ég að bjóða einkaþjálfun núna á kr. 65.000 + vsk.
Innifalið eru 2 x 2 klukkutímar í einkaþjálfun fyrir einn starfsmann á staðnum (í fjarfundi ef ekki er hægt að hittast) ásamt eftirfylgni í síma eða yfir fjarfundarbúnað

Fyrir stór fyrirtæki eða þar sem þarf hópþjálfun.  Fleiri en einn starfsmaður koma í þjálfun og kynna sér markaðssetningu.
Verðtilboð.