Skráðu þig og sendu skilaboð

Verkefnalýsing

Undanfarin ár hef ég aðstoðað fyrirtæki og stofnanir við að forgangsraða verkefnum og takast á við áhættur. Helsta áhersla mín er í upplýsingaöryggi og persónuvernd. Ég hef aðstoðað fyrirtæki við að meta áhættur sem snúa að upplýsingum og innleitt lausnir til að takast við þessar áhættur. Með tilkomu nýrra persónuverndarlaga hefur komið aukin áhersla á að vernda persónuupplýsingar starfsfólks, viðskiptavina og þriðja aðila nægilega vel.